Skortur á upplýsingum um raunverulega eigendur kom Íslandi á svarta listann

Í tilkynningu fjármálaráðuneytisins um ástæður þess að Ísland fór á lista hjá alþjóðlegum hópi ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (FATF) segir að ein þeirra sé skortur á upplýsingum um raunverulega eigendur fyrirtækja.

Það sé því á ábyrgð fyrirtækja að koma Íslandi af listanum með því að koma þeim upplýsingum til fyrirtækjaskrá sem fyrst.

Í tilkynningunni segir einnig: „Árið 2019 voru sett lög um skráningu raunverulegra eigenda og fyrirtækjaskrá falið að taka á móti slíkum skráningum. Sett hefur verið upp síða á þjónustuvef Skattsins fyrir félög til að sinna skyldu til að skrá raunverulega eigendur með rafrænum hætti.

Áhersla er lögð á að þessari skráningu verði komið í viðunandi horf í tíma og hún er ein af forsendum þess að Ísland verði tekið af gráa listanum á yfirstandandi ári. Félögum ber að ljúka skráningu fyrir 1. mars nk. og eftir það er heimilt að beita skráningarskylda aðila sektum hafi þeir látið hjá líða að veita upplýsingarnar, eða fella skráningu lögaðilans niður.“

MEST LESIÐ

AÐRAR FRÉTTIR