Öryrkjar hafa fengið greidda eingreiðslu

Tryggingastofnun hefur greitt öryrkjum út eingreiðslu. Ríkisstjórnin fékk á sig mikla gagnrýni fyrir jól vegna stöðu öryrkja almennt og var uppi krafa um að þeir fengju eingreiðslu fyrir jól. Tryggingastofnun hefur gefið út tilkynningu á vef sínum að greiðslan hafi verið innt af hendi.

Í tilkynningu Tryggingastofnunar segir:

„Tryggingastofnun ríkisins hefur greitt 24.406 örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum eingreiðslu sem nemur allt að 53.100 krónum. Í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem nú ríkja vegna Covid-19 heimsfaraldursins telst eingreiðslan ekki til tekna lífeyrisþega og verður því skattfrjáls auk þess sem greiðslan mun ekki leiða til skerðingar á öðrum greiðslum, en hóparnir fengu samskonar greiðslu í fyrra. 

Þeir örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar sem hafa fengið greiðslur alla mánuði ársins fá fulla greiðslu en upphæð eingreiðslunnar til þeirra sem hafa fengið greiðslur hluta úr ári er í hlutfalli við fjölda þeirra mánaða ársins sem viðkomandi hefur átt rétt á greiðslum.“

MEST LESIÐ

AÐRAR FRÉTTIR