Danir gera kælibíla klára fyrir bóluefni

Eftir fáa daga leggja fyrstu kælibílarnir af stað yfir landamærin til Danmerkur með bóluefni gegn kórónaveirunni. 

Bílarnir hafa verið gerðir klárir til verksins. Það er því stutt í að Danir hefji bólusetningu gegn kórónaveirufaraldrinum.

Gert er ráð fyrir að fyrstu bólusetningarnar hefjist strax eftir jól. Bílarnir eru sérútbúnir fyrir bóluefnaflutninganna eins og sést á myndinni.

Mynd af vef dr.dk

MEST LESIÐ

AÐRAR FRÉTTIR