Af hverju vilja allir þessir stjórar verða hafnarstjóri í Reykjavík?

Það er greinilega eitthvað mjög heillandi við stöðu hafnarstjóra Faxaflóahafna. Flestir hefðu haldið það þarna væri á ferðinni óskup venjulegt starf og meðallaunað. En það hljóta að vera einhverjar ranghugmyndir hjá stjórnmálunum hér á skinna.is? Hvað er það við starfið sem gerir það að verkum að sjálfur fiskistofustjóri er tilbúinn til að yfirgefa stólinn sinn og gerast hafnarstjóri? Og þessir forstjórar? Er þetta virkilega svona ofurlaunað starf og þægilegt að als konar stjórar vilja komast í það? Er það ef til vill þetta tvennt sem fer saman; ofurlaun og spillingin í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar sem heillar?

Það er vitað að í Reykjavíkurborg, sem hefur mest vægi innan fyrirtækisins og kemur til með að ráða hver fær djobbið, fara embættismenn sínu fram og fá vel borgað fyrir það og vinir þeirra – virðist vera ef marka má braggamálið og ýmislegt annað í þeim dúr. Hér er ekki verið að halda því fram að umsækjendur hafi eitthvað misjafnt í hyggju. Þetta er listinn yfir umsækjendur:

  1. Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir Fiskistofustjóri
  2. Baldur Steinn Helgason Verkefnisstjóri
  3. Daði Jóhannesson Framkvæmdastjóri
  4. Einar Guðmundsson Skipstjóri
  5. Erna Kristjánsdóttir Markaðs- og gæðastjóri Faxaflóahafna
  6. Eyjólfur Vilberg Gunnarsson Forstöðumaður
  7. Frans Páll Sigurðsson Framkvæmdastjóri
  8. Guðmundur Gunnarsson Bæjarstjóri
  9. Gunnar Tryggvason Aðstoðarhafnarstjóri Faxaflóahafna
  10. Haukur Óskarsson Framkvæmdastjóri
  11. Jóhann F. Helgason Framkvæmdastjóri Tæknisviðs
  12. Jón Einar Sverrisson Sviðsstjóri
  13. Kristinn Jón Arnarson Verkefnastjóri
  14. Kristinn Uni Unason Vélfræðingur
  15. Kristófer Ragnarsson Framkvæmdastjóri
  16. Magnús Þór Ásmundsson Forstjóri
  17. Ólafur William Hand Ráðgjafi
  18. Óskar Örn Jónsson Forstöðumaður Framkvæmdadeildar
  19. Páll Hermannsson Framkvæmdastjóri
  20. Páll Sigvaldason Hópstjóri framleiðslu
  21. Reynir Jónsson Sérfræðingur og verkefnastjóri stefnumótunar
  22. Róbert Ragnarsson Framkvæmdastjóri
  23. Sigríður Ingvarsdóttir Forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
  24. Stefán Stefánsson Framkvæmdastjóri verktakasviðs
  25. Svavar Halldórsson Framkvæmdastjóri/ráðgjafi/háskólakennari
  26. Valdimar Björnsson Fjármálastjóri

MEST LESIÐ

AÐRAR FRÉTTIR