Sér grefur gröf, Biskup og hirðin hennar

Sigurlaug O. Björnsdóttir skrifar: Ég ætla að hefja þessi skrif á frásögn góðrar konu, öryrkja sem elskar sinn Guð sem samanstendur af föðurnum syninum og heilögum anda, þríeinn eins og sagt er.
Nú, henni eins og stórum hluta þjóðar var krossbrugðið við skrípamynd frá biskupstofu í tilefni sunnudagaskólans, mjög svo gildishlaðna sértækum afbrygðum er vísa til kynhegðunar. Brá hún á það ráð að senda póst á www.facebook.com/thjodkirkja
Byrjar hún á að senda skrípamyndina með þeirri fyrirspurn;  Hvort þeim þyki þetta í lagi ?   En fékk ekkert svar…
Hún sendir síðan tvo aðra pósta, þar sem hún nefnir meðal annars;
“ekki níða Jesú Krist, er ekkert heilagt fyrir ykkur, skammist ykkar, biskup ætti að segja af sér, ég treysti ykkur ekki lengur, ég mun biðja til míns eina sanna Guðs, ekki fígúru, hefði aldrei dottið í hug að þjóðkirkjan mundi níða niður trúna og ykkur er ekki treystandi, þetta mun koma í bakið á ykkur.”  Ég stikla á stóru, en svolítið var af stafsetningarvillum, ég nefni það af ástæðu er skýrir sig litlu síðar.
Hún fær tvö svör frá biskupstofu fyrra svohljóðandi; 
 “EINUNGIS LÆRÐIR gUÐSÞJÓNAR GETA SKILIÐ VILJA  gUÐS. ÓLÆRÐIR LEIKMENN VERÐA AÐ TREYSTA OKKUR OG— HALDA SIG TIL HLÉS. “—
Ástæða þess að ég skrifa lítið g  í Guð er að biskupstofa sendir það þannig frá sér….Ólærði leikmaðurinn ásamt mér og almennt fólki sem á lifandi trú skrifar Guð með stórum vegna virðingar og ástar á föðurnum. Mér fannst þetta athyglisvert. 
Meiri segja goggle translate skrifar Guð með stórum, sló því upp til gamans.
Seinna svarið var svohljóðandi :   ” Leitt að þú teljir okkur níða niður frelsarann.  EN VERRI ER ÞÓ STAFSETNINGIN ÞÍN. “
Punktur og basta, skák og mát þú ólærði leikmaður í guði með litlum.

Það sem  upp úr stendur er ótrúlegur hroki vanvirðing og valdníðsla, þessa fólks sem virðist vera af woke útfærslu sjálfshyggjunnar (sem en er í raun nýyrði yfir pólitíska rétthugsun) en það sem lýsir sem brennandi eldur í gegn um þetta er hroki, heimska, ranghugmyndir og miðaldasjónarmið valdníðslu hinnar gömlu kirkju.

Fékk eftirfarandi svar frá stofnuninni; “Þú ert villuráfandi sauður… Það er spurning að taka upp Biblíuna og byrja að lesa því að mjög framarlega í bókinni góðu kemur regnbogatáknið fyrir. Regnboginn er gamalt trúarlegt tákn, kærleikstákn milli Guðs og manns.”


Annað athyglisvert þessa sömu daga var að kunningjakona mín ásamt fleirum var að ferma barnið sitt. Báðir hinir svokölluðu prestar skörtuðu uppfærðum trefli samtakanna 78 sem stólu , þessi kona spurði sig hvað er að gerast er þetta einhver sérstök messa fyrir samkynhneigða. 
Fermingar börn á Selfossi og foreldrar máttu þola trúðshárkollu í gay litunum og grófa  BDSM fylgihluti um háls og sem armband.  Af hálfu prests íslensku þjóðkirkjunnar Guðbjörgu Árnadóttur táknmyndir sadisma og kvalalosta. SMART ekki satt…
Foreldrar voru ekki varaðir við að nota ætti fermingu barnsins þeirra í þágu áróðurs. 
 Það er vitað mál að ekki allir samkynhneigðir eru þessum ósköpum samþiggir, þar er skynsamt fólk sem annarsstaðar, en það eru öfgarnar sem þarna ráða för, sorglegt að biskup landsins standi fyrir því.
Það er mér óskiljanlegt ef að mikill meirihluti samkynhneigðra vilji aftur láta horfa á sig sem aðskilda í samfélaginu, mér finnst þessi málefni vera komin í andhverfu sína. Það var trúlega hinn mesti feill að taka BDSN inn í samtökin.  Ég hef ekkert á móti samkynhneigðum, þetta mál er ekki frá flestra hálfu að snúast um slíkt, en þetta er of langt gengið, Biskup og co geta ekki logið upp á Krist og orð Biblíunnar og flokkast undir Guðlast og valdníðslu.
Sigríður Guðmarsdóttir í Guðríðarkirkju er kapítuli út af fyrir sig, hún segir; 
 Jesús er hommi, Jesús er kona, Jesús er lesbía, Jesús er transgender einstaklingur, Jesús er intersex, Jesús er transsexúal, heterósexúal, asexúal og pansexúal.  (www.ruv.is/frett/jesus-baedi-hommi-og-lesbia)
Þegar Jesús dó á krossinum fyrir syndir okkar og tók þær á sig þýðir það að hann færir þær fram fyrir skaparann, hann tók syndir okkar á sig andlega en hann varð ekki allt ofangreint eins og hommi, kona o.s.f.v. sem og líkþrár, morðingi og þjófur og allt annað hugsanlegt.
Jesús Kristur var maður þegar hann gekk um á jörðinni, það kemur fram gegnum allt Nýja testamentið, hann er sonurinn, getinn af heilögum anda. Og það var sonurinn sem sté upp til himins þar sem hann situr við hægri hönd föðurins. 
 Get ekki séð hvaða máli það skiptir að hann sé karlkyns, maður breytir ekki Guði þó maður eigi í tilvistarkreppu, sálfræðingar virka í slíku samhengi.  
Og hún heldur áfram og segir; ” Ef við ætlum að horfast í augu við gagnkynhneigðarhyggju heimsins” !!! —Halló,  heimurinn er gagnkynhneigður að lang stærstum hluta, hvar hefur hún verið mér er spurn !!!
Það er fáránlegt að færa almættið niður á svið kynóra og mannlegra langana. Alveg sama hverjar þær eru, almennt viðurkenndar eða ekki. Að draga Guð niður á mannlegt lágmenningarsvið er gjörsamlega glórulaust af Biskup og co. Þannig er fólk rænt hreinum og tærum kærleika Krists og ég meina allir endurtek allir. Fyrir utan Guðlastið.
Þau virðast breyta orðinu eftir eigin hentugleikum, ég setti inn status þar sem verið var með kostaða auglýsingu um sunnudagaskólann með breyttri mynd; Allir voða ánægðir með myndina, en það var ekki bara myndin sem slík sem málið snerist um, ég setti inn færslu þar sem ég benti á það og segi meðal annars,  tek fram að ég væri ekki að standa í þessu þvargi nema vegna barnanna, sem ég tel að sé verið að grooma. 
 Myndin er ekki það alvarlegasta, hún er myndbirting  hugarfars BDSM og samkynhneigðar sem eru ráðandi þættir YFIRSTJÓRNAR kirkjunnar. o.s.frv.
Fékk eftirfarandi svar frá stofnuninni; “Þú ert villuráfandi sauður… Það er spurning að taka upp Biblíuna og byrja að lesa því að mjög framarlega í bókinni góðu kemur regnbogatáknið fyrir. Regnboginn er gamalt trúarlegt tákn, kærleikstákn milli Guðs og manns.”
Ég svara;  það er kannski tími til komin að þú lesir hið heilaga orð án þess að breyta því sjálfum þér í vil, ef þú átt við Nóa flóðið, þá var það sáttmali milli Guðs og manna, hefur ekkert að gera með neðanbeltis pólitík. Lestu 1 Mose bók kafla 9 vers 11 til 18… Og síðan,  En hamfarir þessar lét Guð verða vegna ósæmilegrar hegðunar mannkyns. Það getur verið að ólærðir séu betur að sér i Biblíunni en þú.” En Þú ert að afvegaleiða fólk með þinni persónulegu útsetningu á orðinu…
Samkynhneigðir hafa fengið öll hugsanleg réttindi, en verða hvorki hamingjusamari né gagnkynhneigðari þó öllum kirkjum og trúarbrögðum í heiminum sé slátrað. Og börnum kennt að Jesús sé einhvers konar trans útgáfa af Pippy Langstrom. Og eitt er það annað sem mér finnst mjög ámælisvert af biskup og co og það er að setja samkynhneigða í þessa stöðu, það var illa gert og vanhugsað. 
Eins og segir í sálminum;  Guð tók burtu sekt og synd, nú sér hann aðeins í þér mynd af Jesú, en Jesús Kristur með allan sinn kærleika og náð og miskunn er ekki nógu góð fyrir þetta fólk, það er hreint út Guðlast hvernig biskupsteymið hagar sér. Hvorki samkynhneigðir, ég né aðrir þurfum á endurskrifaðri Biblíu að halda. Það eru öfgafólk innan kirkjunnar sem standa fyrir slíku. 
Eins og djöfullinn hefur það, smávegis af sannleika til að liðka fyrir lyginni.  Biskupstofa stendur fyrir af  því er manni sýnist að afvegaleiða landsmenn með lygi um merkingu á orði Drottins.
Í dag er í gangi nokkuð sem kallast á ensku;  Deconstructing the culture.
Og mín skoðun er sú að það sé akkúrat að gerast hvað varðar þennan furðuásetning b-stofu og kirkjunnar í dag.
Þetta felur í sér niðurrif á gildandi þáttum í þessu sambandi  kirkjunnar, til að endurformata hana til að falla að tilteknum breytingum. Og erum við búin að sjá myndbirtingu á því átaki hennar. 
það er enginn önnur ástæða marktæk, því hvenær varð það hlutverk kristinnar kirkju landsins að leggja sálina í sölurnar fyrir samtökin 78. Það er ekki kirkjunnar að agintera fyrir samtökin 78 eða hvað félag þeirra heitir í dag,  þeir gera það sjálfir og fá góðar fjárveitingar til. 
Frekar en það var Biskups að opna Dómkirkjuna svo hælisleitendur gætu gert þarfir sínar þar inni, þegar þeir sátu um Austurvöll.
„Kirkjuþing var sett nú 12 sept. 2020 og var með ályktun” svohljóðandi; þykir afar miður að Jesú mynd í auglýsingu um sunnudagaskóla kirkjunnar hafi sært fólk…  Hvað fengu margir smá vandræðalegt hláturskast….

Lygin virðist vella út úr þeim hvað varðar ásetning, það liggur fyrir samkvæmt starfsmanni b-stofu að fleiri myndir séu til sem munu fara í birtingu. Hvort þeir láti breyta þeim svo hugnist betur vitum við ekki, en það er næsta víst að hrokinn ætlaði að láta þetta óveður ganga yfir og halda áfram. 
Svo neðan grænni torfu er virðing b-stofu og kirkju landsmanna fyrir landsmönnum að ógleymdum Jesú Kristi.

Greinin er fyrri grein höfundar, um efnið, af tveimur.

MEST LESIÐ

AÐRAR FRÉTTIR