Nýr Fiskistofustjóri tímabundið

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir hefur verið settur Fiskistofustjóri frá deginum í dag og til 30. apríl 2020. Eyþór Björnsson fyrrverandi Fiskistofustjóri hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðuslandi eystra.

Áslaug Eir er sjávarútvegsfræðingur og hefur starfað hjá Fiskistofu í 12 ár sem sviðstjóri og einnig sem staðgengill Fiskistofustjóra.

Í tilkynningu frá Atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneytinu er tekið fram að nítján umsóknir hafi borist um starfið, en umsóknarfrestur rann út þann 28. febrúar 2020.

Umsækjendur eru:

  1. Admir Mrati, verkamaður
  2. Arnar Ágústsson, fyrsti stýrimaður 
  3. Arnljótur Bjarki Bergsson, sjávarútvegsfræðingur 
  4. Álfheiður Eymarsdóttir, stjórnmálafræðingur 
  5. Bergur Elías Ágústsson, framkvæmdastjóri 
  6. Davíð Jónsson, sjávarútvegsfræðingur 
  7. Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, forstöðumaður 
  8. Gísli Hrannar Sveinsson, stjórnunarfræðingur 
  9. Gunnar Hrafn Hall, sjómaður og verkfræðingur 
  10. Hreiðar Eiríksson, lögfræðingur 
  11. Jóhann Friðberg Helgason, framkvæmdastjóri 
  12. Njáll Ragnarsson, sérfræðingur 
  13. Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri 
  14. Reinhard Reynisson, framkvæmdastjóri 
  15. Sigurður Jóhannesson, umhverfis- og auðlindafræðingur 
  16. Svavar Halldórsson, ráðgjafi 
  17. Svanhvít Pétursdóttir, viðskiptafræðingur 
  18. Þórður Heimir Sveinsson, lögmaður 
  19. Dr. Ögmundur Knútsson, ráðgjafi

Nefnd mun meta hæfi umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra, Kristjáns Þórs Júlíussonar sem mun skipa í starfið.

MEST LESIÐ

AÐRAR FRÉTTIR