„Borgarstjórann burt!“ Heilsíðuáskorun til borgarbúa

Skorað er á borgarbúa að kjósa ekki Dag B. Eggertsson og félaga í næstu borgarstjórnarkosningum í heilsíðu auglýsingu í Morgunblaðinu í dag. Í auglýsingunni er farið yfir hvernig borgin hefur hrakið fyrirtæki úr miðbænum og sagt að Laugavegurinn sé orðin að draugagötu vegna stefnu borgarstjórnarmeirihlutans í skipulagsmálum miðbæjarins. Talað er um að fólk komist ekki í bæinn til þess að versla og fjöldi fyrirtækja hafi flúið ástandið.

„Þetta ástand verður ekki skrifað á neina farsótt eða aukna netverslun. Borgarstjórn Reykjavíkur með Dag B. Eggertsson í broddi fylkingar ber fulla ábyrgð á því sem hér hefur átt sér stað,“ segir í auglýsingunni.

Síðan eru talin upp 19 atriði sem mætti kalla skandala meirihlutans í Reykjavík.

Meðal annars er talið upp: 

„Borgarlínan – sem enginn veit hvað er – nema hvað hún á að kosta á annað hundrað milljarða hið minnsta. Þessu sukki var fagnað með sérstakri veislu borgarbrodda sem skattgreiðendur voru látnir greiða hálfa milljón króna fyrir.“

Undir auglýsinguna ritar Bolli Kristinsson kaupmaður og Reykvíkingur.

Texti auglýsingar Bolla er hér fyrir neðan.

Staðan í miðbæ Reykjavíkur er ískyggileg. Laugavegurinn, sem áður var aðalverslunargata bæjarins, hefur á ör- skömmum tíma orðið að draugagötu fyrir tilverknað borgaryfirvalda. Fjöldi rótgróinna verslana hefur flúið miðbæinn nú að undanförnu, ótal fyrirtæki lagt upp laupana og eftir stendur auðnin ein. Þarna ræður mestu heft aðgengi með lokunum gatna og fækkun bílastæða, en allt að 4000 stæði hafa verið tekin
af okkur borgarbúum á síðustu árum.

Viðskiptavinir komast ekki í bæinn og leita annað. Verslanir og veitingahús fá því engin viðskipti. Um þessar mundir eru yfir 30 verslunarpláss tóm við Laugaveginn og gætu trúlega orðið 50 í vetur. Þetta ástand verður ekki skrifað á neina farsótt eða aukna netverslun. Borgarstjórn Reykjavíkur með Dag B. Eggertsson í broddi fylkingar ber fulla ábyrgð á því sem hér hefur átt sér stað.

  1. Borgarbúar eru fastir í umferðarteppum alla daga, kvölds og morgna, vegna aðgerðarleysis og skemmdarstarfsemi borgaryfirvalda í samgöngumálum.
  2. Umferðartafirnar hafa í för með sér gríðarlega mengun en rannsóknir hafa leitt í ljós að eyðsla bílvéla eykst um 131% í umferðarteppum samanborið við hindrunarlausa umferð.
  3. Svifryk í borginni fer ítrekað yfir heilsuverndarmörk. Draga mætti stórlega úr því með því að hreinsa göturnar og rykbinda. Borgaryfirvöld hafa skellt skollaeyrum við slíkum ábendingum.
  4. Bragginn í Nauthólsvík var reistur á ábyrgð borgarstjórans. Hann átti að kosta 158 milljónir en endaði í 415 með dönskum puntstráum og öllu tilheyrandi.
  5. Reynt er að spilla allri flugstarfsemi í borginni og hrekja flugvöllinn burt sem skapar allt að 1000 manns atvinnu.
  6. Grænu svæðin í borginni fá ekki að vera í friði fyrir áformum um þrengingu byggðar, þar á meðal er ráðist á Elliðaárdalinn, náttúruperlu í miðju borgarlandinu.
  7. Hvergi er haft samráð við borgarbúa um nýbyggingar. Skemmst er að minnast fyrirhugaðra húsa á saltfiskreitnum við Sjómannaskólann sem reist verða í fullkominni óþökk nágranna.
  8. Skólamálin eru hneysa hvarvetna. Ekkert samráð hefur verið haft varðandi Korpuskóla og Rimaskóla svo dæmi sé tekið.
  9. Framkvæmdir við nýjan innsiglingarvita fóru tvöfalt fram út kostnaðaráætlun.
  10. Umhirða grænna svæða er til háborinnar skammar. Tún eru illa slegin, illgresi kæfir runna og rusl og veggjakrot blasir við hvert sem litið er. Malarhrúgan úti við Eiðsgranda er táknræn fyrir sóðaskapinn sem einkennir borgaryfirvöld.
  11. Sorphirðugjöld hafa hækkað mikið undanfarin ár en samt sem áður hefur þjónustan versnað stórlega og sorpílát eru aðeins tæmd hálfsmánaðarlega með öllum þeim óþrifnaði sem því fylgir, að ekki sé minnst á rottuganginn.
  12. Biðlistar eftir félagslegri þjónustu lengjast dag frá degi og þannig hefur ástandið verið lengi.
  13. Kostnaður við Mathöll á Hlemmi fór 79% fram úr áætlun.
  14. Á vakt borgarstjórans hafa orðið alvarleg mengunarslys sem hann hefur skirrst við að taka á af festu. Borgaryfirvöld vissu vel að sjósundsfólk synti í skólpmenguðum sjó vikum saman.
  15. Norræn rannsókn leiddi í ljós að 6,3 milljónir plastagana berast úr skólphreinsistöðinni við Klettagarða á hverri klukkustund. Plastagnir eru alvarleg ógn við lífríki heimshafanna og Reykjavík ætti sem höfuðborg sjávarútvegsþjóðar að vera í fararbroddi við verndun lífríkis hafsins.
    Lítið hefur farið fyrir umbótum í þessu efni.
  16. Víða hefur verið ráðist í óskiljanlegar gatnaframkvæmdir með gríðarlegum tilkostnaði. Nægir á benda á Birkimel, Sæmundargötu, Borgartún, Hverfisgötu og Grensásveg, að ógleymdri Hofsvallagötu með alls konar hrákasmíð, fuglahúsum og fleiru.
  17. Borgarlínan – sem enginn veit hvað er – nema hvað hún á að kosta á annað hundrað milljarða hið minnsta. Þessu sukki var fagnað með sérstakri veislu borgarbrodda sem skattgreiðendur voru látnir greiða hálfa milljón króna fyrir.
  18. Eyðilegging besta kostsins fyrir Sundabraut, svokallaðri innri leið, gerir það að verkum að kostnaður margfaldast.
  19. Reykjavíkurborg er de facto gjaldþrota og hefur verið um langa hríð.

Þannig mætti halda lengi áfram að telja og þarf engin að velkjast í vafa um að Dagur B. Eggertsson er versti borgarstjóri Reykjavíkur frá upphafi. Sammælumst um að kjósa hann aldrei aftur! Endurreisn borgarinnar getur ekki hafist fyrr en niðurrifsöflin hafa verið brotin á bak aftur.

Bolli Kristinsson kaupmaður og Reykvíkingur

Auglýsing Bolla Kristinssonar í Morgunblaðinu í morgun. Auglýsingin birtist á tveimur heilsíðum.

MEST LESIÐ

AÐRAR FRÉTTIR