Sex vilja embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar

Alls bárust sex umsóknir um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar sem auglýst var þann 19. desember 2020 en umsóknarfrestur rann út þann 19. janúar sl.

Umsækjendur eru:

1. Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri 

2. Guðmundur Þórðarson, sviðsstjóri 

3. Marcin Zembroski, sérfræðingur

4. Sigurður Guðjónsson, forstjóri 

5. Soffía Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri

6. Þorsteinn Sigurðsson, sérfræðingur 

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skipar í stöðuna frá og með 1. apríl 2021. Ráðherra mun skipa nefnd sem verður falið að meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð um þá.

MEST LESIÐ

AÐRAR FRÉTTIR