Enn gert ráð fyrir að gos nái ekki til byggðar

Samkvæmt vef Veðurstofunnar er áfram gert ráð fyrir að gos geti hafist en að það nái ekki til byggðar. Einn sterkur skjálfti varð í morgun og fannst vel á höfuðborgarsvæðinu.

Því lengur sem núverandi ástand varir aukast líkur á gosi. En sérfræðingar Veðurstofunnar telja að „afar litar líkur séu á því að mögulegt gos nái í byggð.“

Klukkan 7.43 mældist skjálfti á svæðinu SSV af Fagradalsfjalli sem var 5.0 að stærð. Hann átti upptök á því svæði þar sem virknin hefur verið hvað mest síðustu daga, í nágrenni dalsins Nátthaga.Skjálftinn fannst víða á suðvestanverðu landinu, austur á Hvolsvöll og upp í Borgarfjörð.

Frá miðnætti til klukkan 6.30, 12. mars, hafa mælst um 750 jarðskjálftar með SIL sjálfvirku mælakerfi Veðurstofu Íslands. Þar af mældust 15 skjálftar yfir 3,0 að stærð, sá stærsti var 4,0 að stærð kl. 00:58. Skjálfti af stærð 3,9 mældist kl. 03:51 og kl. 05:09 mældist skjálfti af stærð 3,5. Virknin var bundin við sunnanvert Fagradalsfjall.

Í gær, 11. mars, mældust um 2600 jarðskjálftar sjálfvirkt. Stærsti skjálftinn mældist af stærð 4,6, kl 08:53, alls mældust 29 skjálftar yfir 3 að stærð. Virknin var mest í sunnanverðu Fagradalsfjalli en 4 skjálftar yfir 3,0 að stærð mældust í Eldvörpum.

MEST LESIÐ

AÐRAR FRÉTTIR