Komið hefur í ljós að vígamenn sem börðust í Sýrlandi og hafa snúið aftur til Danmerkur eru í nánu sambandi sín í milli. Þetta er eitt af því sem danska lögreglan komst að eftir aðgerðir sem komu í veg fyrir hryðjuverk í Kaupmannahöfn og íslamistar áformuðu að fremja í jólamánuðinum.
Maðurinn sem er um 20 ára var handtekin í aðgerðum lögreglu í gær.
Hann var í dag ákærður fyrir að hafa hjálpað til við að fjármagna hryðjuverk á óþekktum stað í Kaupmannahöfn. Meðal þess sem hann reyndi að kaupa voru byssur með hljóðdeyfi og skotfæri.
Hann mætti fyrir rétt í dag skælbrosandi með dökkt al skegg í hettutreyju og gallabuxum eftir því sem segir í fréttum danskra fjölmiðla í dag. Dómari hefur bannað að fjölmiðlar birti nöfn þeirra sem ákærðir voru í dag.