Breskt brugghús breytir nafni á krám: Gæti verið sakað um rasisma

Nú er verið að breyta nöfnum fjögurra kráa í Bretlandi vegna þess að brugghúsið sem starfrækir krárnar óttast að verða sakað um rasisma.

Það eru þrjár krár sem kallast „Svarti strákurinn“ og sú fjórða „Svarta höfuðið“ sem er í eigu brugghússins Greene King.

BBC fjallar um málið

Talið er þó að það séu yfir 70 krár með nafninu „Svarti strákurinn“  (e.“The Black Boy“) í Bretlandi, en það er greinilega engin sátt um hvaðan nafnið kemur.

Vísað er til bæði breska námuvinnsluiðnaðarins og gælunöfn fyrir Charles II.

Önnur kenning er sú að nafnið vísi í útskornar styttur af frumbyggja Ameríku sem hafa verið notaðar sem augnayndi í tóbaksverslunum.

MEST LESIÐ

AÐRAR FRÉTTIR