Ný reglugerð um hjálparlið var útgefin 17. mars síðastliðinn og hefur hún ekki vakið mikla athygli þótt margt nýmæla er við ákvæði hennar.
Í fyrstu grein hennar er sagt: „Á neyðarstigi almannavarna er það borgaraleg skylda manna sem eru á aldrinum 18–65 ára að gegna, án endurgjalds, starfi í hjálparliði almannavarna í umdæmi þar sem þeir dveljast samkvæmt fyrirmælum er lögreglustjóri gefur, að fengnum tillögum almannavarnanefndar eða ríkislögreglustjóra,“
Þetta er athyglisvert skref sem dómsmálaráðherra stígur og ef til vill skiljanlegt í ljósi ástandsins í dag vegna kórónuveirufaraldsins. Það sem hefur farið fyrir brjóstið sumra er ákvæðið um skyldu almennra borgara til gegna þjónustu í hjálparliðinu og finnst það vera of líkt herskyldu. Í sjöttu grein hennar segir:
„Á neyðarstigi almannavarna getur lögreglustjóri kvatt hvern fullorðinn mann, sem tiltækur er, til tafarlausrar aðstoðar við störf í þágu almannavarna. Ákvörðun um kvaðningu manns til tafarlausrar aðstoðar við almannavarnir verður ekki skotið til æðra stjórnvalds. Á neyðarstigi almannavarna má sá sem kvaddur hefur verið til tafarlausrar aðstoðar í þágu almannavarna ekki fara úr lögsagnarumdæmi án samþykkis lögreglustjóra eða þess er hann tilnefnir. Ríkislögreglustjóri hefur ákvörðunarvald um flutning þeirra manna sem kvaddir hafa verið til tafarlausrar aðstoðar í þágu almannavarna. Ef fjöldi manns eða hjálparlið er flutt á milli umdæma skal haft samráð við lögreglustjóra og almannavarnanefnd.“
Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt 22. gr. laga nr. 82/2008, öðlast gildi þegar í stað segir í lok reglugerðarplaggsins.
Íslendingar eru það heppnir að hafa á að skipa björgunarsveitir sem skipt hafa sköpum við björgunarstörf á sjó og landi. Án þeirra væru íslensk stjórnvöld illa stödd og þyrftu annað hvort að fjölga í lögregluliðinu, sem nú þegar er undirmannað, eða koma á fót herliði.
Þessi reglugerð bendir til að stjórnvöld haldi að björgunarsveitirnar dugi ekki til, ef baráttan við faraldurinn versnar. Í raun er hér um að ræða þegnskyldu almennra borgara sem er nýmæli.