Orð Dags B. Eggertssonar, um að nauðsynlegt væri að verkafólk sé á lægri launum en aðrir, hefur hleypt illu blóði í verkalýðshreyfinguna. Samningaviðræðum milli Eflingar og borgarinnar sem vera áttu hjá sáttasemjara var frestað þar sem sáttasemjari taldi það gefið fyrirfram að ekkert myndi gerast. Orð Dags komu mörgum á óvart en í því samhengi er vert að rifja upp orð Gylfa Arnbjörnssonar fyrrum forseta ASÍ sem hann lét falla í útvarpsviðtali fyrir nokkrum árum, að þær ríkisstjórnir sem verst væri að eiga við þegar kæmi að samningum um kaup og kjör væru vinstriríkisstjórnir. Í kveðjuræðu sinni í október 2018 þegar Gylfi lét af starfi sem formaður ASÍ rifjaði Gylfi þetta meðal annars upp og sagði þetta um Vinstri græna og aðkomu þeirra að kjaramálum:
„Til þess að bíta höfuðið af skömminni lét ríkisstjórnin síðan ólöglegar niðurstöður Kjararáðs standa og heyktist við að taka til baka ofurhækkanir stjórnmálamanna og æðstu embættismanna. Tillaga ASÍ var samstaða allra um nýjan þjóðarsáttmála, þar sem auknum tekjum ríkis og sveitarfélaga af hagvexti yrði varið til eflingar velferðar- og félagsmála. Því miður var ríkisstjórnin, undir forsæti Vinstri Grænna, ekki tilbúin til þess þessa verks og því var miðstjórn ASÍ nauðugur sá kostur að hafna þátttöku í þjóðhagsráði sem átti að vera samráðsvettvangur aðila til þess að tryggja hér efnahagslegan og félagslegan stöðugleika. Í allri þessari umræðu hefur það alltaf legið ljóst fyrir, að ASÍ myndi aldrei sætta sig við aukin ójöfnuð og misrétti,“ segir hann.
Margir líta á orð Dags sem menntahroka og andstæðingar líta á þau sem afhjúpandi fyrir þá fyrirlitningu þeirra, sem kalla sig jafnaðarmenn, á þeim sem þeir hafa alla tíð sagst vera að standa vörð um. Orð borgarstjórans virðast hafa hleypt samningaviðræðum í hnút í borginni og hefst verkfall Eflingarfólks á hádegi í dag og stendur til 13. febrúar. Um 3500 leikskólabörn munu verða fyrir áhrifum verkfallsins, 1600 notendur velferðarþjónustu og sorphirða mun raskast, svo eitthvað sé nefnt. Búast má við að frekari harka hlaupi í aðgerðir Eflingar á næstu dögum.