Tilraunaverkefni um sjúkraþyrlu

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning að tilraunaverkefni um sjúkraþyrlu. Heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hefur verið falið að útfæra fjármögnun og tímasetningu verkefnisins. 

Það vekur athygli að ekki kemur fram í tilkynningu á heimasíðu stjórnarráðsins hver komi til með að reka sjúkraþyrluna en líklega kemur landhelgisgæslan þar helst til álita. 

Lagt er til að þyrlan verði staðsett á suðvesturhorni landsins eða eins og sagt er í tilkynningunni:

„Lagt er til að þyrlan verði staðsett á suðvesturhorni landsins þar sem útköll vegna slysa og bráðra veikinda eru tíð og hefur fjölgað mikið á síðustu árum á svæðinu, ekki síst á Suðurlandi þar sem straumur innlendra og erlendra ferðamanna hefur verið mikill og vaxandi. Horft er til þess að með þyrlunni og sérhæfðri áhöfn hennar megi stytta umtalsvert viðbragðstíma í útköllum. Þessi þjónusta myndi jafnframt draga úr fjarveru sjúkrabíla og lækna úr héraði og auka þannig öryggi á hlutaðeigandi svæði. Enn fremur væru sjúkraflutningar með þyrlu á suðvesturhorninu mikil bót fyrir sjúkraflutninga fyrir Vestmannaeyjar sem er stærsta byggð Íslands án tengingar við „fastalandið.“

MEST LESIÐ

AÐRAR FRÉTTIR