Norðmenn halda sinn þjóðhátíðardag í dag, 17. maí. En lítið verður um hátíðargöngur.
Hátíðarhöldin verða að mestu á netinu og í sjónvarpinu. En fámennar táknrænar samkomur hafa verið haldnar. Þannig hefur fólk keyrt prúðbúið í fornbílum um götur bæja og borga.
Fólk hefur verið hvatt til að setja myndir af fjölskyldunni fanga deginum saman og hefur mikið magn myndbanda verið birt á vef nrk. – norska ríkissjónvarpsins sem er með beinar útsendingar frá öllum hlutum landsins í dag þar sem rætt er við fólk og fyrirmenni í tilefni dagsins.
Mynd: skjáskot af nrk.is