Lögreglan í Kenýa hefur handtekið þrjá háttsetta lækna sem grunaðir eru um að stjórna samtökum sem versla með börn í kjölfar rannsóknar BBC á þjófnaði og sölu á börnum í landinu. BBC Africa Eye leiddi í ljós að börnum var stolið eftir pöntun frá ólöglegum heilsugæslustöðvum og á opinberu sjúkrahúsi í Naíróbí. Börnin voru seld fyrir allt að 300 pund sem gera um 55 þúsund íslenskar krónur. Lögreglustjórinn hefur fyrirskipað rannsókn á sjúkrahúsum, auk barnaheimila í Naíróbí. Rannsóknir hafa leitt í ljós að háttsettir læknar voru í nánum tengslum við mansal barna, sagði yfirmaður lögreglunnar, Hillary Mutyambai. Hinir grunuðu hafa ekki tjáð sig.
Heilbrigðisstarfsmenn handteknir fyrir sölu á stolnum börnum
- November 18, 2020
- 5:55 pm
- Erlent, Fréttir