Hægagangur í Frakklandi: Aðeins 516 Frakkar bólusettir á einni viku

Franskir ​​sérfræðingar og álitsgjafar eru ekki hrifnir þegar þeir meta fyrstu viku kórónubólusetningar í Frakklandi, þar sem aðeins 516 Frakkar hafa verið bólusettir.

ESB lönd hófu bólusetningu með BioNTech-Pfizer skömmtum 27. desember. Á sunnudag hafði Þýskaland bólusett rúmlega 240.000 borgara, en Danmörk samanlagt 45.000 bólusetningar. Sama dag var opinbera talan í Frakklandi 516 manns.

– Við bólusetjum á sama hraða og fjölskylda fer í sunnudagsferð, á forsetinn, Emmanuel Macron, að hafa sag í gær samkvæmt blaðinu Le Journal du Dimanche. Fram kemur í blaðinu að forsetinn hafi verð „trylltur“ af reiði.

Að vísu hafði forsetinn ekki veitt raunverulegt viðtal en hlutum af reiðilestri forsetans með nánustu ráðgjöfum hafði verið lekið í dagblaðið sem vitnaði þannig einnig í Macron um að „hlutirnir verði að breytast hratt og breyta miklu“.

Könnun sem gerð var nýlega í Frakklandi sýnir að aðeins 46 prósent ætlar að láta bólusetja sig. Mjög mikil tortryggni ríkir meðal almennings gagnvart bólusetninu og sú mesta meðal almennra borgara í Evrópu.

MEST LESIÐ

AÐRAR FRÉTTIR