Borgarfulltrúar minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur gagnrýna kostnað við borgarstjórnarfundi. Komið hefur í ljós að kostnaður við fundi er um 850 þúsund krónur á fund.
Helsti kostnaðarliður er matur. Pawel Bartoszek (Viðreisn) forseti borgarstjórnar, sagði í samtali við rúv að best væri ef hægt væri að haga vinnu og fundum borgarstjórnar þannig að borgarfulltrúar borðuðu heima hjá sér.
Þessar tölur um matarkostnað við fundi borgarstjórnar hafa vakið furðu í samfélaginu og koma ofan í ýmsar aðrar fréttir um óstjórn á peningamálum borgarinnar undir stjórn núverandi meirihluta vinstri flokkanna í borginni.