Á miðvikudaginn voru tveir handteknir sem komu í flóttamannaflugi frá Afganistan til Arlanda. Mennirnir eru búsettir í Afganistan og eru í endurkomubanni til Svíþjóðar eftir að hafa áður verið dæmdur fyrir glæp og afplánað dóm í Svíþjóð.
Tveir hafa verið handteknir fyrir að brjóta endurkomubann, að sögn Kristian Ljungberg hjá lögregluyfirvöldum i Svíþjóð.
Aðspurð hvernig mennirnir tveir áður dæmdir og borttvísað frá Svíþjóð gætu komið með flóttamannaflugi til Svíþjóðar, segir Carina Skagerlind, talsmaður lögreglunnar í Stokkhólmshéraði við TV4 Nyheterna:
– Ég held að allir sem hafa séð myndirnar frá Kabúl og flugvellinum geri sér grein fyrir því að ástandið er ekki alveg einfalt þegar kemur að landamæraeftirliti þar.
Það var í tengslum við persónuskilríkjapróf við komu til Svíþjóðar að í ljós kom að mennirnir höfðu framið glæpi í Svíþjóð og sættu endurkomubanni.