Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, verður ekki viðstaddur útför Philips prins vegna plássleysis.
Aðeins þrjátíu manns er heimilt að vera við útförina vegna sóttvarna, segir í tilkynningu skrifstofu ríkisstjórnarinnar.
– Forsætisráðherra mun gera það sem best er fyrir konungsfjölskylduna og sjá til þess að sem flestir fjölskyldumeðlimir geti tekið þátt. Hann mun því ekki mæta í jarðarförina á laugardag, segir í tilkynningunni.
Phillip prins, sem lést á föstudag 99 ára að aldri, verður jarðaður á laugardag.